Starafugl

Það eina sem peninga skortir er afdráttarleysi

  • Fréttir
  • Viðtöl
  • Gagnrýni
  • Pistlar
  • Bókmenntir
  • Tónlist
  • Myndlist
  • Kvikmyndir
  • Sviðslistir
  • Senda inn ljóð
  • Skrifið ritstjórn
Bergþóra Árnadóttir, Ólöf Sverrisdóttir

Kona

ritstjórn 01. 05. 201830. 04. 2018

Ég vil ekki
þurfa að vera
eins og karlmaður
Til að fá sama rétt og hann

Ég vil ekki
þurfa að hugsa
eins og karlmaður
Til að vera ekki fyrirlitinn

Ég vil ekki
þurfa að tala
eins og karlmaður
Til að tekið sé mark á mér

Nei, ég vil ekki þurfa að
vera, hugsa og tala
eins og karlmaður

Því ég er kona
Og ég vil vera kona.

 1. maí, Skáldskapur, Tónlist. .

Post navigation

← Er alþýðan kröfuharður unglingur?
Hanoi ræða Olofs Palme →